Klukkan
25.01.2009 02:06:02 / kolbrung

Algjör klikkun!

Jiii krakkar, það er ekki nema 1 vika í að krílið á að koma í heiminn. Það er eiginlega ótrúlegt að hugsa út í það að við fáum að halda á barninu okkar eftir mjög stuttann tíma. :haha: Þetta verður bara yndislegt, það er ég viss um. :) Það er nánast allt tilbúið fyrir komu krílsins. Tengdaforeldrar mínir voru í Reykjavík um daginn og haldiði ekki að Inga hafi keypt sæng handa krílinu, hún var búin að segjast ætla að kaupa eina slíka svo hún fór í dún & fiður og keypti æðislega sæng. :) Hún keypti líka þrenn æðisleg rúmföt. Svo keypti hún flott teppi og 2 síðerma boli sem ég reyndar var búin að biðja hana um að kaupa. Hún sagði okkur svo í kvöld að hún ætlar í rúmfatalagerinn á morgun og kaupa í gjafapúða og sauma handa okkur. :p Hún er yndisleg. Það er svo dýrt að kaupa gjafapúða, sá ódýrasti sem ég hef séð er á 9.800 kr takk fyrir! En tengdó sá nú reyndar púða á tæpar 8.000 kr sem er samt rosalega mikið. Við setjum inn myndir af þessu öllu þegar við fáum þetta. Hún ætlar að þvo sængurfötin og svona fyrst og líka þvottastykkin sem hún saumaði til fyrir okkur. :)

Jæja, ég ætla að segja ykkur aðeins frá því þegar við Árni fórum með Dimmu okkar til dýralæknis á miðvikudaginn. Málið er það að Dimma er búin að vera eitthvað slöpp í maganum, það var farið að koma svo skrítin lykt af kúknum hjá henni og lyktin kom jafnvel sama dag og við skiptum á kassanum hjá henni sem er mjög óvanalegt. Svo er hún búin að sofa svo mikið undanfarið svo að við ákváðum að fara með hana á dýraspítalann í lögmannshlíð sem er hjá hesthúsunum upp frá og láta líta á hana. Hún komst strax að og konan byrjar á að skoða hana eftir að við útskýrum af hverju við værum komin. Hún byrjaði á að kreista magann á henni og finna hvað væri að og kom strax með það að hún væri með meltingartruflanir og bólgur í maga. Hún spurði hvaða mat við værum að gefa henni og við sögðum henni það (við gefum henni wiskas) og svo sögðum við henni líka að við værum allt of gjörn á að gefa henni túnfisk. :s Hún sagði að wiskas væri alls ekki góður matur fyrir meltinguna og að við ættum alveg að hætta að gefa henni túnfisk. Við að sjálfsögðu samþykktum það strax að hætta að gefa henni túnfisk en ég trúi því seint að wiskas sé ekki góður matur fyrir meltinguna, ég veit ekki betur en að þetta sé einn besti matur sem maður getur gefið kettinum sínum ásamt fleiri tegunum eflaust. Hún semsagt mældi Dimmu og hún var með aðeins hærri hita en kettir eiga að vera með en þeir eiga að vera með ca 38-38,5 en hún var með 38,8. Svo sprautaði hún hana. Dimma var sko ekki sátt og öskraði gjörsamlega og klóraði reyndar aðra konuna. :$ Ég fékk eiginlega smá tár í annað augað því ég vorkenndi Dimmu svo.:| Þegar það var búið að sprauta krúsluna okkar þá hljóp hún inn í búr og vildi sko ekki koma út aftur. Það var kominn tími á ormasprautu fyrir hana en þar sem að hún var svo ósátt að þá fengum við bara meðal í sprautu sem við sprautum upp í hana sem við fengum með heim til að gefa henni eftir 2 daga þegar hún væri búin að jafna sig.  Dýralæknirinn sagði okkur að hún væri með rétta matinn fyrir hana svona allavega til að byrja með og svo ráðum við bara hvort við höldum áfram að gefa henni það og svo sagði hún okkur að það væri gott að gefa henni malta bita sem er eiginlega svona nammi svona í staðin fyrir túnfiskinn. Við ákváðum að sjálfsögðu að kaupa malta bitana og matinn. :) Reikningurinn hljómaði upp á 10.604.- sem mér fannst ekkert ótrúleg tala. Konan sagði þegar við vorum að fara að borga: „ég gef ykkur afslátt af matnum fyrst hann er svona dýr“ ég sagði bara: „jájá“ og hugsaði ekkert meir út í það. Við fengum nótu með þessu og hér ætla ég að setja hana upp.

 

Vitjun: 3.600.-
Ren: 280.-
Ormalyf: 610.-
I/d 2kg: 5.920.- 5% afsl= 5.624.-
Malta bitar: 490.-

 

Finnst ykkur eitthvað skrítið við þennann reikning? Já, maturinn kostaði 5.920 KRÓNUR en með þessum 5% afslætti fengum við hann nú á 5.624 KRÓNUR!!! Þetta er ekki nema 2 kg poki...!!! Við erum að fá 2 kg wiskas mat fyrir ca 1000 kr minnir mig...allavega ekki meira. Ég hefði að sjálfsögðu spurt út í þetta verð ef ég hefði verið vakandi þegar ég var að borga. Þetta er ekki eðlilegt! Tæpar 6000 krónur fyrir þennan mat. Hann hlítur að vera búinn til úr gulli eða hverjum andskotanum sem er svona rosalega dýr í framleiðslu! Ég var að tala við kunningjakonu mína um þetta um daginn og hún sagði að þessi stofa væri þekkt fyrir að okra og setja slatta á vörurnar. Við myndum að sjálfsögðu halda áfram að kaupa þennan mat handa Dimmu okkar því henni finnst hann rosalega góður en það er bara ekki eðlilegt að kaupa svona dýran mat. Ég hugsa að við höfum samband við einhverja dýrabúð eða dýralækni fyrir sunnan og spyrjum hvaða mat þau mæla með sem er góð fyrir meltinguna. Vitið þið annars um einhvern sérstakann mat sem er góður fyrir kisumallakúta?:p Það er allavega á hreinu að við kaupum ekki þennan mat aftur.


» 21 hafa sagt sína skoðun

20.01.2009 15:02:53 / kolbrung

Allt að verða vitlaust

Ofboðslega finnst mér skrítið að vera heima en ekki í vinnunni. Mér líður svona eins og ég sé að skrópa í vinnunni, er með einhvern móral. :S Það er kannski af því að ég er svo hress eitthvað, er ekkert þung á mér. Ég reyndar finn til í lífbeininu og finn að grindin er alveg að gliðna. Sérstaklega finn ég fyrir því á næturnar. Þegar ég vakna í öll þessi ca 5-7 skipti á næturnar þá á ég erfitt með að reisa mig upp, Árni vaknar nú oftast upp við það og ýtir mér upp...hahaha. J Í nótt hefði ég þurft hækjur myndi ég segja því ég var svo agalega slöpp í lífbeininu sem leiddi í mjöðmina vinstra megin sem var örugglega verkur í grindinni, ég þurfti að styðja mig við veggina á leið á klósettið. L En svona er þetta, það eru margar sem eru ekki komnar langt á leið og eru alveg búnar á því út af grindagliðnun svo að ég er bara fegin að þetta kom ekki fyrr. Það eru ekki nema 11 dagar í settann dag. En fólk er nú með sýnar dagsetningar. J Petra segir að það komi 21.janúar...semsagt á morgun! Yfirmaður minn segir 13-14.febrúar sem þýðir að hann ætlast til þess að ég gangi 2 vikur framyfir...hehehe. J Mamma segir 1-2.febrúar. Ég fékk töluna 7 upp í hugann um daginn svo að ég gæti trúað að það komi þann 7.febrúar sem er akkurat 1 vika framyfir sem er allt í lagi sko. Ég er reyndar að vonast til þess að þetta blessaða barn fæðist þann 2.febrúar því það er dagurinn sem við Árni trúlofuðum okkur. ;) Það yrði ekki ónýtt. :) Annars er mér svosem sama hvenær það fæðist, bara að barnið fæðist heilbrigt og hamingjusamt í þennan heim. :)

Ég er búin að vera hérna heima að brasa eftir að hafa farið út að borða með mínum heittelskaða. ;) Ég kveikti á útvarpinu og er að hlusta á bylgjuna og heyrði að það var verið að segja frá mótmælunum við alþingishúsið.  Mér finnst nú þessir mótmælendur vera farnir að ganga svolítið langt. Svo eru þessir mótmælendur rosalega hissa þegar lögreglan beitir piparúða á fólkið!!! Hversu vitlaust er það? Það kemur alltaf einhver vitleysingur í viðtal og leikur sig svo saklausann...“ég var bara þarna og var ekki að gera neitt og svo kemur lögreglan og sprautar piparúða á fólkið án þess að segja nokkuð og ég fékk þetta í augun...ÉG SEM EKKERT GERÐI“ Hvað í andskotanum er fólk að gera þarna ef það er ekki að mótmæla? Fariði þá bara ef þið viljið ekki fá piparúða á ykkur!  Lögreglan lætur alltaf vita áður en hún notar piparúða, þeim ber skilda að gera það enda ekki annað sjálfsagðara þar sem að það víst algjör viðbjóður að fá þetta í augun. Lögreglan getur ekki bara horft yfir hópinn og séð hverjir hafa bara staðið og ekki mótmælt eða gert neitt og pikkað út fólk og sprautað á alla hina. Þeir sem telja sig ekki eiga skilið fá piparúða á sig hafa tíma til að forða sér þegar lögreglan kallar yfir svæðið „varúð, varúð...nú munum við beita piparúða“ Ég vorkenni þessu fólki akkurat ekki neitt! Ég vorkenni ekki einu sinni fjölmiðlafólkinu sem fær þetta í augun, þau eru þarna og eru þá bara fyrir. Þetta er alveg ótrúlegt hvernig fólk er búið að haga sér. Svo eru þetta oft bara einhverjir unglingar sem eru að kasta eggjum og einhverju ógeði í alþingishúsið og vita örugglega ekkert hver ástæðan er. Ég man fyrir svolitlu síðan þegar einhver fréttamaður kom að einhverjum ungling, ca 15 ára myndi ég giska á og spurði hann hvers vegna hann væri hér að mótmæla og hann varð voðalega kjánalegur og sagði „Uhh...ég er bara hérna til að styðja alla í þessum mótmælum“ Hahaha...hann hafði akkurat enga hugmynd af hverju hann var þarna að kasta eggjum í alþingishúsið.:haha: Ég skil að fólk sé reitt út í ríkisstjórnina og ég skil það mætavel að fólk mótmælir en ekki á þennan hátt, með þessi læti og óþverraskap! Ég er ekki tilbúin að mótmælendur tali fyrir mína hönd...allra síst þegar þessi látalæti eru í gangi og þessi þvílíki barnaskapur!:^)


» 22 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 22:35:43 / kolbrung

Helga Gunnarsdóttir

Í dag er 1 ár liðið síðan amma mín hún Helga Gunnarsdóttir féll frá. Ég sakna hennar alltaf jafn mikið og hugsa mikið til hennar. Hún var yndisleg manneskja í alla staði. Hún vildi öllum vel og mátti ekkert aumt sjá. Það er alltaf jafn skrítið að hugsa til þess að hún er ekki lengur hér.

Elsku amma, hvíldu í friði.

Kveðja Kolla

» 23 hafa sagt sína skoðun

10.01.2009 22:50:24 / kolbrung

Hversu mikið getur einn köttur sofið?

Ég er komin í barneignarfrí. Ég ætlaði ekkert að hætta fyrr en á miðvikudaginn og var búin að ræða það við yfirmann minn. Svo eftir vinnu í gær þá stakk Árni upp á því að ég myndi bara segja þetta got því ég væri nú búin að vera svo dugleg að vinna og ætti nú alveg skilið að fara að taka mér frí.:) Svo sagði hann mér að það væru margir að tala um hversu dugleg ég er búin að vera að vinna. Ég verð nú að viðurkenna það að ég er nokkuð sammála því…hihihi.:lol: Ég meina, ég hef ekkert minnkað við mig vinnuna., mæti frá 10-18 á daginn. Ég reyndar svaf lítið á sunnudags og mánudagsnótt og var eitthvað slöpp í lífbeininu og ákvað að vera bara heima þessa tvo daga. Við fórum í mæðraskoðun á mánudeginum samt  sem áður og viti menn, barnið er búið að skorða sig. Þess vegna er ég orðin eitthvað slöpp í lífbeininu. Það varð svosem ekkert meir úr þessu samtali okkar Árna um að ég myndi bara hætta núna í vinnu og fara að taka því rólega. Þegar við komum heim þá var ég svo þreytt að ég lagðist upp í rúm og steinsofnaði, svo þegar ég vaknaði þá ákváðum við hjúin að taka smá rúnt og fórum á kaffi Akureyri þar sem að Rúnar Þór var að spila. Við stoppuðum ekki lengi þá og ákváðum að rúnta aðeins meira. Svo fórum við aftur á kaffi Akureyri og hittum Jónas og Sússa þar og sátum með þeim í hálftíma eða svo og fórum svo bara heima að sofa reyndar eftir að hafa fengið okkur sitthvorn Hlölla bátinn.8| Þegar við vöknuðum í dag tilkynnti Árni mér að hann hafi hringt í yfirmann minn sem hann þekkir mjög vel og talað við hann um fríið mitt. Hann semsagt ákvað að tala við hann og athuga hvort það væri ekki í lagi að ég myndi bara vera hætt núna þar sem að hann tæki nú eftir því að ég væri nú orðin svolítið lúin og jújú, það var að sjálfsögðu allt í lagi. Hann sagði nú að hann hefði nú alveg verið búinn að búa sig undir þetta símtal frá okkur og sagði Árna að biðja mig um að hringja í sig ef ég væri sama sinnis.8) Ég ákvað að hringja í hann í dag og tala við hann um þetta…ég ákvað semsagt að vera bara farin í frí og það var bara hið minnsta  mál og hann skildi mig alveg.:haha: Hann er alveg frábær yfirmaður hann Jón, ég segi nú ekki annað.:haha:

Við ætluðum austur í gær og vera komin aftur á sunnudaginn en ákváðum að leggja í hann í morgun því það er svo leiðinlegt að keyra í dimmu og sjá ekki hvort það sé hálka eða ekki. En þar sem að færðin var ekki alveg sú besta þá ákváðum við að bíða með að fara af stað þar til á morgun. Það var nú ekki ófært en það er best að fara varlega og taka ákvarðanir eftir því…ég meina, ég er komin rúmlega 8 mánuði á leið og við tökum ekki neina óþarfa áhættu. Vó, það er ekki nema 21 dagur í settann dag. Við ætlum að vera í Fellabænum til þriðjudags eða miðvikudags. Það verður bara yndislegt eins og alltaf.;) Það er ekkert mál fyrir Árna að fá frí frá sinni vinnu þar sem að hann er að vinna hjá foreldrum sínum svo sagði mamma hans honum endilega að drífa sig og vera bara lengur ef færðin væri ekki góð.:) Ég vona svo innilega að færðin verði góð á morgun því mig langar svo austur svona áður en barnið fæðist. Það verður ekki eins auðvelt að fara hvenær sem er þegar það er fætt.

Hvað er með ketti og að sofa endalaust stundum? Hún Dimma okkar er búin að sofa í allan dag. Við fórum út um 15.00 í dag og Dimma var nýlega sofnuð og þegar við komum heim um 18:00 þá var hún sofandi á sama stað upp í gluggakistu á flísteppinu sínu. Þegar við fórum inn í sjónvarpsherbergi þá elti hún okkur og lagðist hjá okkur á fína flísteppið sem við vorum með og steinsofnaði og hraut.:p Það er nú ekki langt síðan við komum aftur fram eða um hálftími og Dimma kom eftir smástund og er á stól hér hjá okkur á teppi steinsofandi. Hehehe…ég bara skil þetta ekki. Ætli hún sé ekki bara fegin að hafa okkur heima svona mikið loksins og er bara afslöppuð hjá okkur? Ég held það bara. Hún er yndisleg þessi krúsa okkar.:haha:

Jæja, er farin að brjóta saman þvottinn.:)

Later Kollz


» 19 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 23:56:16 / kolbrung

Það styttist í miklar breytingar hjá okkur hjúum.

Ég er búin að vera heima í dag og í gær vegna svefnleysis og verkjum í lífbeininu en þó aðalega út af svefnleysinu. Við ákváðum þó að fara í mæðraskoðun í gær þrátt fyrir að ég hafi ekki farið í vinnuna. Okkur finnst það mikilvægt að mæta, þessir tímar skipta svo miklu máli. Ég var nú ekki viss hvort þessir verkir væru í lífbeininu svo að ég spurði ljósmóurina og jú það passaði. Ástæðan er sú að barnið eru búið að skorða sig sem er bara mjög gott.:) Sum börn skorða sig ekki fyrr en í fæðingunni sjálfri sem er í sjálfri sér allt í lagi svo að við erum bara í góðum málum fyrir utan lífbeinið sem fær að finna fyrir því í staðin.:$ Það eru ekki nema 25 dagar í settan dag sem þýðir það að það styttist óðum í miklar breytingar hjá okkur hjúum.:) Þótt ótrúlegt megi virðast eins mikill "aumingi" og ég er í sambandi við sársauka að þá kvíðir mig ekki neitt fyrir fæðingunni. Sumum konum finnst þetta hreint helvíti, öðrum finnst þetta vont og aðrar finna varla fyrir þessu, móðir mín er ein af þeim.:) Ég var nú að lesa í bækling áðan að kona getur erft það frá móður hvernig gekk í fæðingunni...ég vona að sjálfsögðu að ég eigi auðvelt með þetta eins og mamma. Ég ætla nú að þiggja allt sem verður í boði til að slá á verki. Þá er ég að tala um hláturgas sem sumar reyndar gubba af og mænudeyfingu sem er víst frekar óþægilegt og maður lamast fyrir neðan mitti í einhvern tíma á því...það er þess virði hugsa ég EF verkirnir verða óbærilegir. Stundum er það orðið of seint að fá mænudeyfingu ef útvíkkunin er orðin mikil. Maður veit aldrei hvernig þetta fer allt saman en ég veit að þetta blessast allt saman.:) Ég vona reyndar svo innilega að barnið fæðist ekki á tilsettum degi sem er 31.janúar. Pabbi tilkynnti mér hver ætti afmæli þann dag og ég varð ekkert ofboðslega sátt að heyra hver það er. Þið sem vitið hver það er vitið vonandi hvernig mér líður og skiljið mig.:klikk: Þið hin sem ekki vitið um hvaða manneskju ég er að tala, það verður bara að hafa það...ég ætla ekkert að vera að flagga því hér enda hef ég ekki mikinn áhuga á því að vera að drita því nafni hér niður á mína yndisfríðu síðu.8|

Við Árni fórum í myndatöku um daginn hjá félaga Árna sem heitir Gísli Dúa og er ekkert smá klár, við erum mjög ánægð með myndirnar. Við settum nokkrar myndir inn á barnalandssíðuna okkar, þið sem viljið skoða þær ýtir hér en þið sem eruð búin að sjá þær megið alveg fara aftur inn á síðuna og skoða...hehehe.:haha:

Á morgun ætlum við að byrja á því að þvo barnafötin, ég get ekki beðið.8) Ætli maður byrji ekki á því að kaupa neutral þvottaefni og henda þessum litlu fötum í þvottavélina...víííí...ég er orðin svo spennt.:)

Jæja, ég ætla að fara að henda mér upp í rúm. Ætla að reyna að mæta í vinnu á morgun þeas EF ég næ að sofa eitthvað af viti.

Góða nótt :p

» 20 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 14:44:19 / kolbrung

Er að fara norður á ný

Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Ég þakka öllum fyrir þessar yndislegu jólagjafir sem ég fékk, ég er mjög ánægð með allar þær gjafir sem ég fékk. Ég get notað þær allar, fékk ekki tvennt af neinu svo ég þarf ekki að skila neinu.:)

Tinna er að fara keyrandi norður á eftir og ég fæ að fljóta með. Mig hlakkar rosalega til að fara norður en ég verð nú að viðurkenna það að ég er ekkert svakalega spennt yfir því að vera þar yfir áramótin.:$ Mig langar helst að keyra austur á gamlársdag eftir vinnu en þá spyr maður sig: Er sniðugt að fara keyrandi komin þetta langt á leið? Ég á að eiga eftir ekki nema 1 mánuð. Ef eitthvað kæmi upp á að þá er ég ein. Ég hugsa að það sé ekki sniðugt EN vá hvað mig langar það samt. Æjj...kannski geri ég það bara. Æjj, ég verð bara eitthvað hálfpartinn down að hugsa um þetta allt saman...það er svona þegar maður er óákveðinn. Eða kannski er málið bara að ég eiginlega "verð" að ákveða eitthvað sem mig kannski langar ekkert sérstaklega að gera.

» 17 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 02:10:33 / kolbrung

10 dagar í jólin

Ég er búin að vera í tölvunni síðan ég kom heim rúmlega 22 í kvöld:!:8| Ég er fyrir löngu búin með netið...veit ekki einu sinni af hverju ég sit hérna ennþá, rassinn á mér er gjörsamlega dofinn.

Það er ekki nema 1 vika þar til ég fæ að fljóta austur með Björgvin og Svetlönu, semsagt á sunnudaginn.:) þetta verður yndislegur tími, ég reyndar væri alveg til í að hafa Árna hjá mér eins og ég skrifaði hérna einhverntíman þar sem að ég verð hér fyrir norðan um áramótin.:haha: Ég verð nú að viðurkenna það að mig langar nú ekkert sérstaklega mikið til að vera hér um áramótin. Alls ekkert ílla meint til Árna og fjölskyldu, það er ekki málið heldur vill maður alltaf vera þar sem maður er vanur að vera yfir hátíðarnar, ehaggi? Svo er svo erfitt að gera eitthvað allt annað en maður er vanur, þarf að breyta venjum og gera allt einhvernvegin svo allt öðruvísi en maður er vanur.:s Við Árni vorum svosem búin að tala um það að vera í síðasta sinn í sitt hvoru lagi um jólin og áramótin núna en svona er þetta þegar vinnan kallar. Ég hef nú reyndar verið hérna ein áramót hjá Árna og hann hefur alltaf svikið það að vera hjá mér...HA? ÁRNI???:klikk:

Annars er Árni að spila núna á kaffi akureyri og við píurnar einar heima. Ég var nú búin að lofa Dimmu minni kósý kvöldi hjá okkur en nei, ég er búin að hanga í tölvunni í allt kvöld:!: Sorry Dimma, við gerum bara eitthvað skemmtilegt á morgun þar sem ég er í fríi þá. Shit hvað mér leiðist eitthvað núna...veit ekkert hvað ég á að gera, veit ekkert hvað ég á að skrifa hér...er ekki þreytt, ekkert í sjónvarpinu like all the time. Ég hef því ákveðið að halda áfram að skoða allt og ekkert á netinu og segi þar af leiðandi...bless.

» 21 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 17:10:08 / kolbrung

Til hamingju með afmælið...

...í gær Ástin mín.:haha: Vonandi ertu ánægður með það sem þú fékst.;) Þú átt nú reyndar eftir að velja þér skó...þar sem að mössubúð ákvað að loka fyrr í gær like always og ég heima í dag lasin að þá kíkjum við í skóleiðangur þegar ég er komin á lappir.:p

Hvað er málið með það að stöð 2 er að fara að endursýna dagvaktina strax??? Hún er nýbúin:!: Fyrsta þáttinn af tólf á að sýna í kvöld kl: 19:55. Er ekki allt í lagi? Þetta finnst mér alveg út í hött. Er ekki betra að finna eitthvað sem fólk getur og vill horfa á? Dagvaktin kemur pottþétt út á dvd, ég efast nú um það að fólk sé það spennt að það verður að endursýna alla þættina strax:!::!::!::evil: Það getur alveg örugglega beðið eftir disknum. Díses, þetta pirrar mig geðveikt. Ég fór inn á stod2.is áðan til að athuga hvað yrði í sjónvarpinu í kvöld fyrir svona lasarus eins og mig og þá sá ég þetta og varð ekkert ofboðslega sátt að sjá þetta. Stöð 2 hefur reyndar dalað alveg helling síðustu mánuði. Ég eiginlega veit ekki af hverju við erum að borga af þessum horbjóði sem hækkar í verði oftar en maður skiptir um nærbuxur liggur við:!: Ég hugsa það að nágrannar haldi í mann. Ég get að sjálfsögðu farið ólöglegu hliðina og náð í þættina á netinu. Kannski geri ég það bara. Þetta digital helvíti er svo mikið drasl hvort eð er. Þetta er alltaf að frjósa og ef maður hringir og kvartar þá fær maður alltaf sömu spurningarnar: Ertu búinn að prófa að fá þér nýjann myndlykil? Já, við erum búin að fá okkur nýjan myndlikil fyrir löngu...:!: Og svo er það annað: Það fór hjá okkur ljósleiðari...RIGHT:!::!::!: Það er bara ekki sjens að það passi alltaf. Þetta gerist að meðaltali 3 í mánuði. Svo þegar Árni spurði um daginn hvort þau geri nú ekki eitthvað fyrir viðskiptavini sína í staðin þegar digitalið er að frjósa svona þannig að maður getur engan vegin fylgst með því sem er í sjónvarpinu, þá kom alveg það heimskulegasta frá þessari 15 ára gömlu barni sem er að svara í símann þarna:
Nei, við getum ekkert gert fyrir þig...ekki nema að lykillinn sé búinn að láta svona í 3 daga að þá sendum við beiðni um að gert verði eitthvað fyrir ykkur á yfirmann minn og hann hefur samband við þig.
Þetta finnst mér sú allra lélegasta þjónusta sem uppi hefur verið hér á Íslandi.
Ég veit ekki betur en að Árni hafi nokkrum sinnum hringt út af einhverju veseni hjá þeim og honum sagt að það yrði hringt í sig og hann bíður alltaf eftir símTÖLUNUM:!: Ég er ekki frá því að ég ætli að ræða það við Árna að við hættum með digital myndlykilinn og höldum okkur bara við símasjónvarpið. Það reyndar er stundum að frjósa en samt ekki eins oft. Þannig að ég gæti bara farið að ná í nágranna á netinu...það eina sem eitthvað er af viti þarna á stöð 2.

Jæja,
þetta var pirringsblogg Kollu. Ætli ástæðan sé ekki góð fyrir því...að vera lasin heima og gera ekki neitt:!: Það getur valdið pirring.:^)

» 19 hafa sagt sína skoðun

06.12.2008 21:18:31 / kolbrung

Mikið að gera

Þessi tími er búinn að vera alveg yndislegur í alla staði. Við erum á fullu að gera barnaherbergið tilbúið og það gengur bara rosalega vel...það verður ekkert smá flott.:haha: Við erum búin að vera að mála í dag, næsta verk sem er á eftir er að festa listana og líma svo nemo fígúrur á svæðið sem við máluðum (Árni málaði reyndar aðalega). Herbergið ætti að vera tilbúið í kvöld en reyndar eigum við eftir að kaupa kommóðu inn í það, þegar hún er komin þá er herbergið alveg tilbúið. Ég set nú kannski inn myndir í kvöld en ef ekki að þá eftir að kommóðan er komin inn.

Ég er búin að ákveða að þvo barnafötin eftir áramótin, það er fínt að gera það þá því þá er það hvorki of snemmt né seint. Það gæti gerst að ég eigi aðeins of snemma og þá er nú gott að allt er nú tilbúið og svo gæti verið að ég eigi mun seinna en ég er sett og þá er sko gott að geta sett lappirnar upp í loft og beðið bara í rólegheitunum.:lol:

Ég ætla ekki að hætta að vinna fyrr en um miðjan janúar ef allt gengur vel eins og hefur gert. Árni segir að ég sé fædd til að ganga með börn því ég hef akkurat ekkert fyrir því sem ég er mjög fegin með.:) Það eina sem ég finn fyrir eru hreyfingar...punktur:!: Reyndar er ég fyrst að finna fyrir núna að ef ég sit eða ligg í einhverja stund að þá finn ég aðeins til í vinstri mjöðminni í augnablik...þetta er eflaust verkur í grindinni. Þetta er samt ekkert sem ég er að kvarta yfir...ég er annars bara eiturhress.:p

Við Árni spjölluðum aðeins við Jón yfirmann minn um barneignarfríið mitt, ég tek að sjálfsögðu 6 mánuði og svo langar mig að lengja fríið aðeins eða vera í fríi út árið í staðin fyrir að mæta í ágúst/september aftur og mæta þá í janúar 2010. Jón tók mjög vel í það og sagði svo: Kolla...ég myndi banna þér að koma aftur eftir 6 mánuði...:!: Hehehe...ástæðan er sú að honum finnst bull að vera að fara út á vinnumarkaðinn í fulla vinnu með 6 mánaða gamalt barn heima. Því er ég fullkomlega sammála. Ég skil alveg ef konur ákveða að gera það en mér persónulega langar nú að vera heima aðeins lengur með litla krílinu. Hver hefur svosem sína skoðun. ;) Árni var að spá í að taka 1 mánuð þegar barnið fæðist en er svona að velta því fyrir sér að fara í 2 vikur frekar og eiga meira inni. Það er alveg eins sniðugt. Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum, við verðum að fara að skila blöðunum á Hvammstanga þar sem fæðingarorlofssjóðurinn er...eða ekki seinna en í þarnæstu viku.

Í dag er ég komin 32 vikur á leið, þetta er búið að vera svo fljótt að líða en samt finnst mér svo langt síðan við komumst að því að ég væri ólétt. Áður en maður veit af er maður komin með krílið í hendurnar.:) Þetta verður bara æðislegt, ég efast ekki um annað.
Við ætlum að taka bumbumyndir í kvöld og setja inn á barnalandssíðuna...ef þið ýtið hér að þá getið þið skoðað síðuna, endilega gerið það.8)
Við áttum að fara í myndatöku í vikunni hjá félaga Árna en það varð ekkert úr því, við förum sennilega í næstu viku. Hann er ekkert smá góður ljósmyndari svo við getum ekki beðið eftir að fara til hans.:haha:

Ég ætla að hafa þetta fínt í bili og láta eina bumbumynd fylgja með þessari færslu sem Árni tók úti í Glasgow þegar við vorum þar í nóvember.

http://s3.frontur.com/img/89632/20081114220619_1.jpg

» 23 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 16:20:11 / kolbrung

Vá...stutt í jólin

Guð minn góður, það er kominn 29.nóvember:!:8| Ég er varla að trúa því að desember sé bara hérna hinum megin við helgina. Þetta ár er búið að vera fáránlega fljótt að líða. Svo ég tali nú ekki um hversu stutt er í litla krútt. Ég er komin 7 mánuði á leið og 3 vikur.Ekki nema 63 dagar í settann dag.:haha: Ég er eiginlega hissa hversu hress ég er ennþá komin þetta langt á leið. Ég er ennþá í fullri vinnu, þarf ekkert að vera að minnka við mig. Ég hugsa að ég vinni bara fulla vinnu þar til ég fer í barneignarfrí. Ætli ég hætti ekki ca 2 vikum fyrir settann dag ef allt gengur vel. Maður verður nú að búa sig endanlega vel fyrir komu barnsins.:)

Áður en við fórum til Glasgow áttum við ekki einn einasta hlut fyrir barnið nema þennan eina kjól af mér síðan ég var 1 árs en það þarf ekkert að vera að okkar barn geti notað kjól þar sem að það gæti bara verið að það komi strákur, hver veit? Ekki við allavega.:d En við keyptum alveg helling úti svo að við eigum alveg slatta til. Við keyptum alveg helling af fötum, nokkra pela, nokkrar snuddur, pumpu, róandi dót til að setja á rimlarúm með lagi, ljósi og myndum sem hreyfast...ótrúlega sniðugt. Svo keyptum við glös og nokkrar skeiðar sem virka þannig að ef maturinn sem við erum að gefa barninu er of heitur breytir skeiðin um lit, alveg ótrúlega sniðugt líka.:)

Áður en við fórum út þá keyptum við rosalega flottann brio kerruvagn í fifa upp á höfða, það margborgaði sig að kaupa hann hér á Íslandi en úti...skrítið að hugsa til þess að það borgi sig að kaupa sumt hér á Íslandi.:$ Svo keyptum við líka skiptiborð með baði á sama stað.

Mamma og pabbi Árna ákváðu að gefa okkur rimlarúm og mjög góða dýnu með. Við fórum öll í Ikea saman og við Árni völdum rúmið. Það er alveg ótrúlega flott og við erum mjög ánægð með það.

Við höfum ákveðið að breyta tölvuherberginu í barnaherbergi, Árni er búinn að gera rosa flotta tölvuaðstöðu hérna frammi í setustofunni. Við ætlum að byrja á barnaherberginu vonandi í næstu viku ef tími gefst. Það er meira en nóg að gera hjá Árna og mér reyndar líka, það fer að lengjast opnunartíminn í office 1. Við erum búin að kaupa ljósfjólubláa málningu í barnaherbergið, lista og nemo fígúrur til að líma á vegg...ég get varla beðið eftir að við erum búin með herbergið.:haha: Það verður í rauninni allt barnadótið þar nema rúmið og skiptiborðið. Þannig að það er nóg að undirbúa fyrir svona lítið kríli.;)

Ég fer austur um jólin...VÍÍÍ...:!::):d:haha: En ég hugsa að ég verði að vera komin aftur hingað norður á milli jóla og nýárs út af vinnunni. En það verður bara að hafa það. Ég er að vonast til þess að Árni minn vilji koma með mér austur og vera með mér um jólin.:$ Mig langar það svooo...:lol:

Eins og þið sjáið að þá er ég búin að breyta "lúkkinu" á síðunni yfir í jólaþema...venjulega fyndist mér það of snemmt en þar sem það er jólastemning hér á torginu, bigband Akureyrar með söngkonu að syngja jólalög og svo er verið að kveikja á jólatrénu. Svo að mér finnst allt í lagi þetta árið að koma með jólaþema aðeins fyrr en vanalega.:p

Árni er að fara að dj-ast í hólum í hjaltadal í kvöld svo að við Dimma erum búnar að ákveða að hafa stelpukósýkvöld...það verður voða næs hjá okkur stelpunum.:) Árni kemur ekki fyrr en á morgun enda rugl að vera að keyra allaleið til baka í nótt, það er ekki sniðugt. Svo tók ég að mér aukavakt á morgun og þarf sennilega að labba í vinnuna sem er ekkert nema gott, það er svo hressandi að labba í svona snjó og kulda. Svo getur verið að Árni fái bara jeppann lánaðann hjá foreldrum sínum til að fara í kvöld því það er slatti snjór á leiðinni hugsa ég og það er nú betra að vera alveg pottþétt öruggur, ekki það að volvoinn sé eitthvað slæmur í snjó...alls ekki...hann er bara ekki fjórhjóladrifinn. Þannig að það gæti bara verið að ég hafi bílinn...það skiptir svosem ekki öllu.

Næstu helgi erum við að fara í sumarbústað hér rétt fyrir utan Akureyri, ég man aldrei hvað staðurinn heitir. Það verður bara kósý...við ætlum aðeins að njóta þess að vera saman svona áður en barnið kemur í heiminn, ekki það að það sé ekki hægt eftir að það fæðist svosem. Ég get ekki beðið eftir að fara og slaka aðeins á í sumarbústað og fara í pottinn...ahh...reyndar í fyrsta skiptið sem við förum í bústað og ég ekki með bjór í pottinum.8| En vitiði? Það er bara allt í lagi.;)

Ég bið að heilsa í bili og eigið þið góða helgi.

P.s Ég minni á barnalandssíðuna okkar...urlið er: www.barnaland.is/barn/79597 
Ég var að setja inn fyrstu færsluna á vefdagbókina.:) Svo koma alltaf annað slagið fleiri bumbumyndir þar sem allar bumbumyndirnar eru. Í næstu viku koma svo myndir af okkur Árna saman þar sem að við erum að fara í myndatöku...vííííí.:haha:

» 27 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 23:54:27 / kolbrung

Bloggklukk

Hann Finnur bróðir ákvað að klukka mig...hér eru svörin:

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
* American Style
* Nóatún
* Í rækjunni í Fellabæ
* Office 1

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á
* Mýrin
* Sódóma Reykjavík
* Kristnihald undir jökli
* Löggulíf

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á

* Hallormsstaður.
* Trékyllisvík.
* Fellabær.
* Akureyri

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
* Spánn
* Svíþjóð
* Danmörk
* Fellabær

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
* Nágrannar
* America´s next top model
* Grey´s Anatomy
* Animal cops

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega
* www.lostaeti.is
www.finnurtg.blogspot.com
* www.lubbiklettaskald.blog.is
* www.helgimella.wordpress.com

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á
* Hamborgbarhryggurinn sem mamma gerir á jólunum og áramótunum
* Londonlambið sem pabbi gerir
* Kjúklingaréttur ala Árni & Kolla
* Russian ala amma (sakna þess rosalega)

8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft
* Eyðimerkurblómið (fyrri bókin)
* Eyðimerkurdögun (seinni bókin, en ekki hvað?)
* Pick me up (breskt blað með allskonar sönnum sögum)
* Spenna (blaðið sem pabbi er ritstýrir) ;)

9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna

* Spáni
* Fellabæ
* Borða doritos með ostasósu með Kareni minni
* Upp í rúmi að lesa pick me up :haha:

10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka
* Helgi MOÐAFOKKINGS mella
* Sunna krúsa
* Björgvin bróðir
* Soffía eða Hotzja ;)



Þá er það komið kakkah.:d

Annars er það að frétta að við fórum í þrívíddarsónar í gær í Reykjavík. Það var ekkert smá æðislegt.:) Þetta var alveg magnað, það er alveg ótrúlegt hvað tæknin er orðin flott. Við sáum sko alveg hvor okkar á meira í barninu...hehehe...Árni á sko vinninginn þar.:d Sem er ekkert nema gott mál enda yndisfríður gaur þar á ferð.;)

Við settum inn nokkrar myndir frá þrívíddarsónarnum og 2 video sem eru alveg hreint mögnuð.:)

Ég minni aftur á barnalandssíðuna okkar...urlið er: www.barnaland.is/barn/79597
Endilega kíkið á myndirnar og svo megið þið alveg kvitta fyrir komu ykkar...það er ekkert nauðsynlegt svosem en það er voða gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur.;)


Við keyptum fyrsta hlutinn fyrir barnið í gær og það var skiptiborð með baði og hillum. Það er líka það eina sem við eigum...hehehe...þetta kemur allt saman.:lol: Reyndar á ég ekkert smá flottan kjól síðan ég var 1 árs sem amma Helga gaf mér en það er ekki hægt að nota hann ef það kemur strákur.:$ Við vitum ekki hvort þetta er strákur eða stelpa, við ákváðum bara að láta það koma í ljós þegar það er komið í heiminn. Okkur er alveg sama svosem.;) Við létum taka frá kerruvagn fyrir okkur á sama stað þar til á morgun og við erum búin að ákveða að taka hann þar sem að það kostar nánast það sama að kaupa hann úti...það munar rétt rúmum 5000 krónum. Það semsagt er rúmum 5000 krónum ódýrara að kaupa þennann vagn úti og við hugsuðum okkur ekki tvisvar um það hvað við ættum að gera. Að dröslast með vagn til Íslands frá Glasgow eða borga þennan pening á milli??? Hmmm...hehehe, borga takk:!::)

Við erum semsagt að fara til Glasgow á sunnudaginn, já í þessari kreppu...nota bene við keyptum miðana fyrir kreppuna:!: Við ætlum ekki að versla neitt nema barnaföt sem er reyndar ennþá hagstætt. Þetta verður mjög gaman.

En eins og ég segi...endilega kíkið á barnalandssíðuna okkar, nýjar og flottar myndir af gullmolanum.:p

» 22 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 23:03:58 / kolbrung

Skemmtilegir tímar framundan

Mikið rosalega er ég fegin að snjórinn er komin.:haha: Það eru alls ekki allir sammála mér, ég hef sjaldan hlakkað meira til...ég hef örugglega verið í kringum 12 ára þegar ég var svona spennt síðast.:)

Við Árni erum búin að vera mjög dugleg að fara út að labba, það er svo rosalega hressandi að labba svona í kuldanum og svo hefur maður bara gott af því.

Á mánudaginn förum við í mæðraskoðun og þá fáum við að vita hversu stórt barnið er, fáum að heyra hjartsláttinn og fá að vita hvort að allt sé ekki pottþétt eins og hefur verið. Það er rosalega fínt að fara og hitta ljósmóður sem er svo yndisleg eins og þessi sem við erum með. Maður finnur alveg fyrir trausti frá henni, ef við myndum ekki finna fyrir trausti frá henni að þá að sjálfsögðu er manni frjálst að skipta um ljósmóður eins og maður vill. Meira að segja megum við reka ljósmóðurina út í miðri fæðingu og heimta aðra...hehehe...það yrði nú skrautlegt ef maður færi út í þá sálma.:haha:

Sunnudagskvöldið 9.nóvember förum við til Glasgow og verðum í eina viku. Það er svolítið síðan við pöntuðum flugið og erum búin að safna slatta af pening inn á bók svo að við erum nokkuð safe.:) Ég hugsa að við eigum bara eftir að eyða pening í barnið sem er væntanlegt í heiminn þann 31.janúar.;) Það er allavega ekki vitlaust, ég meina okkur vantar ekkert þannig held ég. Mann i vantar reyndar svosem alltaf eitthvað. Það verður voða gaman hjá okkur.:d Við verðum hjá Balla, Svandísi, Kjartani Degi og Ingibjörgu litlu. Við erum orðin mjög spennt.:)
 

Þann 5.nóvember fljúgum við suður og förum í þrívíddarsónar. Við ætluðum ekki að fara í svoleiðis en okkur langar svo að prófa. Við getum ekki beðið:!::p Við fáum hreyfimyndir á disk og svo helling af myndum líka á disk. Við ætluðum að vera alveg fyrir sunnan þar til við færum út, það var minnsta málið að frá aðeins lengra frí.:) En þar sem að það er foreldrafræðsla þann 6.nóvember og það er ætlast til að maður mæti í alla tímana að þá ætlum við að koma heim um kvöldið og fara svo suður á föstudeginum eða laugardeginum. Ekki það að við viljum sleppa tímanum, það er mjög gaman og fræðandi í þessum tímum. Reyndar þurfum við að sleppa einum tíma sem er þann 13.nóvember en getum lítið í því gert því þá erum við úti. Það er ekkert mál því við segjum ljósmóðurinni það og hún fer yfir þá hluti sem á að ræða í þeirri fræðslu þann daginn, svo að þetta blessast allt saman.:d

Þannig að það eru bara æðislegir tímar framundan. Ég er mjög spennt fyrir að bjóða litlu lífi inn í þennann heim og hvað þá Árni minn. Hann sagði mér um daginn að hann hugsi varla um annað en þetta litla barn.:) Það kemst varla annað fyrir hjá honum þessa dagana...hehehe, það er rosalega gaman að heyra.:p Hann er æði þessi elska og búinn að vera yndislegur í alla staði við mig eins og alltaf. Ég veit það fyrir víst að ég er ekki búin að vera með hormónavesen út í hann...þið skiljið, er það ekki? Þá er ég að tala um að vera með pirring og leiðindi við hann. Það eru ansi margar ófrískar konur sem lenda í því að hormónarnir fara í rugl og bara ráða ekki við pirringinn og láta allt bitna á manninum sínum eða bara alla í kringum sig. Sem betur fer er ég ekki í þeim gír...eða er það nokkuð Árni minn?:$


Ég vil endilega benda á barnalandssíðu sem við erum komin með. Við ætluðum ekki að gera neina síðu fyrr en barnið er fætt og okkur fannst það ekki þurfa fyrr en ákváðum að búa eina til svona fyrir fólk sem maður hittir ekki oft. Þá er ég að tala um vini okkar sem eiga ekki heima hér á Akureyri og þar sem að enginn úr minni fjölskyldu er hér að þá ákváðum við að gera síðu og henda inn sónarmyndum og einhverjum bumbumyndum.:) Endilega kíkið á síðuna og ekki vera feimin að kvitta í gestabókina.;) Ýtið hér til að fara inn á síðuna. Ég er búin að setja link hér til vinstri undir: litla krílið okkar. Njótið.:p

Kolla out

» 24 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 21:35:06 / kolbrung

Rosalega á fólk bágt!!!

Ég er rosalega eitthvað lúin núna eftir ekki svo mikinn svefn í nótt. Ég var ekki sofnuð fyrr en að verða 2:30, svo vakti Árni mig um 5 leytið og sagði mér að það væri einhver dúddi hérna fyrir utan sem var að brjóta rúðu í bíl og ég ákvað nú að kíkja fram með Árna og fylgjast með þessum gaur þar sem að bíllinn okkar var rétt hjá. Svo labbar þessi vitleysingur að sýslumannshúsinu og sparkar í hurðina þanning að það koma frekar stór sprunga. Eftir mjög stutta stund kom löggan og keyrði beint að stráknum sem greinilega þorði ekki að flýja og henti honum inn í bíl og keyrði svo í burtu.:haha: Hvað fær fólk til að gera svona hluti? Þessi dúddi hefur verið 16 eða 17 ára "ofurtöffari". Það er ekki sjens að ég myndi þora þessu, ég myndi aldrei gera svona þar sem að þetta er ekkert nema heimskulegt. Ég vorkenni þessum gaur ekkert þegar hann fær reikninginn heim fyrir þessum rúðum...múhahahaha.:d

Þessi mótmæli sem er verið að fjalla um hér finnst mér fyrir neðan allar hellur. Þetta finnst mér bara sýna heimsku þessa fólks sem stendur fyrir þessu og ekkert annað. Ég ætla ekkert að fara að dæma vinnu Davíðs Oddssonar þar sem að ég hef ekki alveg nógu mikið vit fyrir þessu. Eflaust gerði þessi maður mistök:!: Hver gerir ekki mistök? Mér finnst þetta mjög lágkúrulegt af þessu fólki að efna til svona mótmæla:!:
Þetta fólk sem stendur fyrir þessu eru: Hörður Torfa, Kolfinna Baldvinsdóttir, Dr Gunni, Birgir Þórarinsson og Andri Sigurðsson.
Ég er gjörsamlega búin að missa allt álit á þessu fólki. Ekki það að ég hafi eitthvað dýrkað þetta fólk, þekki það ekki neitt. En halló, þetta er fólk sem er nokkuð þekkt í þjóðfélaginu. Ég reyndar veit ekkert hver þessi Birgir Þórarinsson er né Andri Sigurðsson, er það kannski rithöfundurinn? Æjj, mér er slétt sama. Hörður Torfa hefur aldrei verið í uppáhaldi en mér finnst hann samt syngja mjög vel. Ég lofa mér því hér eftir að ef ég heyri í þessum manni syngja í útvarpinu eða sjónvarpinu eða sé hann þar að þá slekk ég tafarlaust á tækinu. Ég hef aldrei svosem vitað neitt um Kolfinnu þannig séð, hef séð þættina sem hún er í á ÍNN. Það er ekki langt síðan ég frétti að hún væri feministi (kannski er það bull) og ég bara fíla ekki feminista. Dr Gunni er eflaust fínn gaur en hann er ekki í náðinni hjá mér núna. Bara heimska og ekkert annað fólk:!: Eflaust er ég voða vitlaus að vera að pirrast á þessu, kannski er það bara heimskulegt. En það verður þá bara að hafa það.:$

Árni minn er úti að skemmta sér með strákunum. Þeir ákváðu fyrir svolitlu síðan að fara út þann 18.okt, þeir fóru í ljós áðan og í pottinn með bjór. Núna eru þeir á strikinu að borða og ætla svo að koma heim að horfa á Kevin & Perry go large. Sú mynd er snilldi, ein af mínum uppáhalds og Árna líka.:) Hafið þið séð hana? Svo ætla þeir út á tjúttið á aðalstaðinn hér í bænum eða kaffi Akureyri og 101 Akureyri sem er uppi á sama stað.
Mér finnst rosalega gaman að Árni ákvað að fara út með þeim eða karlaklúbbinum Hannes eins og hann heitir.:haha: Það er svo langt síðan hann hefur farið út með félögunum eða svona mörgum félögum í einu meina ég. Vonandi á hann eftir að hafa gaman í kvöld en ekki of gaman...hehehe.:lol:
Ahhh...ég elska hann svo mikið.:) Vá hvað það er gott að elska eina manneskju svona mikið. Sorry ef ykkur finnst ég vera væmin.:p Að sjálfsögðu elska ég alla mína nánustu en svona ást er öðruvísi...svona in love ást.:haha:

Jæja, ég núna ætla ég að hætta í bili.

Ég ætla að fara og horfa á sjónvarpið með helling af nammigotti þar til strákarnir koma...mmm...:p

» 25 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 23:27:03 / kolbrung

Tíminn er svo fljótur að líða

Jahá...það er föstudagur á morgun...jæks, mér finnst alltaf vera helgi sem er svosem alveg ágætt bara.

Árni fór með bílinn til félaga síns sem ætlar að setja varahlutina í bílinn og hann tilkynnti Árna það að það þyrfti að kaupa tímareim. Við vissum það svosem að það færi að koma tími á að skipta um hana. Hvað er að þessum dúddum í brimborg??? Eru þetta gjörsamlega steiktir menn? Það er greinilegt:!: Félagi Árna sem ætlar að setja varahlutina í bilinn okkar sagði við Árna að þeir þarna í brimborg væru frægir fyrir þetta, að líta á bíla og segja hvað þarf að gera og svona en segja ekki alveg allt og svo þegar bíllinn er kominn til þeirra og þeir búnir að taka bílinn nánast í sundur að þá hringja þeir í mann og segja t.d: Heyrðu? Tímareimin er bara alveg farin, við verðum að skipta. Djöfulsins hálfvitar:!: Sorry að ég skuli segja þetta en þetta er álit mitt á svona aulahætti. Hvað ef tímareimin hefði farið daginn eftir að þeir litu á bílinn og bíllinn skemmst? Ohh...ég verð svo pirruð að hugsa út í þetta. Af hverju í andskotanum létu þeir okkur ekki vita að helvítis tímareimin væri að fara hvað á hverju? Árni fór með bílinn til þeirra til þess eins að þeir myndu segja honum hvað væri sem mætti laga og borgaði fyrir þá þjónustu. Maður ætti bara að labba þangað inn til þeirra og fá endurgreitt. Eða einfaldlega að hringja suður í yfirmann og kvarta...svo veit maður aldrei hvernig það er tekið í það, yfirmaður vill kannski frekar trúa starfsfólkinu sínu sem er væntanlega búið að segja honum allt aðra sögu.:s
Æjjj...ég nenni ekki að tala um þetta, ég nenni ekki að fara pirruð að sofa.

Við Árni erum búin að vera saman í 6 ár og 9 mánuði í dag.:) Já, ég sagði 6 ÁR og 9 MÁNUÐI:!:8| Tíminn er svo fljótur að líða maður, sem er svosem ekkert nema gott.:)
Svo eru svo yndislegir tímar framundan. Þrívíddarsónar eftir 20 daga, Glasgow eftir 24 daga, fyrsta barnið okkar væntanlegt eftir 107 daga, eða þá er ég sett en það gæti svosem komið aðeins fyrr eða seinna. Við Árni erum alltaf jafn hamingjusöm og erum alltaf spenntari og spenntari fyrir öllu saman.;)

Góða nótt

Kollz

» 22 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 12:24:18 / kolbrung

Próf fyrir verðandi foreldra

Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst!

Fituprófið

Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

Leikfangaprófið

Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.

Stórmarkaðsprófið

Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

Fataprófið

Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

Matarprófið

Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

Næturprófið

Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina. Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!

Sköpunargáfuprófið

Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.

Bílprófið

Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!

Þolpróf kvenna

Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ? 9/10 verða eftir.

Þolpróf karla

Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn!

Lokaprófið

Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt svör við öllu.
Ert þú tilbúin(n) til að eignast barn?

Hmm...hvað segirðu um þetta Árni minn? :s   :haha:

» 21 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 13 febrúar
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 72505
Dagsetning
29. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti